Magga bloggar
15.09.2006 15:55:12 / magga

Long time no see....

Ég er komin aftur:haha: Sumarið að verða búið svo það er best að byrja aftur að blogga. Sumarið hefur annars verið snilld, en best af öllu var samt ferð með SVANINUM til BAD ORB nú í september. Mikið hlegið, drukkið, borðað, spilað,dansað, bullað, fíflast.. lítið sofið. Bjórnum var dælt í okkar í endalausum bunum, svo mikið að manni varð eiginlega alveg nóg um:!: Fékk á mig viðurnefnið "Magga the toilet terminator" eftir viðureign mína við dolluna á hótelherberginu mínu einn morguninn..... ég vann:S Nánari upplýsingar verða einungis gefnar í síma8)

Meira seinna.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 23:24:57 / magga

Það er komið sumar!

Gleðilegt sumar kæru vinir.

Meira seinna....


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 21:08:43 / magga

Þrenna

Síðustu eina og hálfa vikuna hafa bíllinn, uppþvottavélin og vídeótækið bilað:klikk: Bíllinn er meira að segja svo bilaður að gaurinn sem ætlaði að gera við hann segir ekki taka því og mælir með endurvinnslunni8| Ég þurfti að bíða í tvo daga eftir viðgerðarmanni fyrir uppþvottavélina og loks þegar hann kom hagaði hún sér eins og allt væri í himnalagi en þremur tímum seinna var hún stopp:klikk: svo Hemmi fór með hana í viðgerð og hún er ekki væntanleg eftur fyrr en eftir páska8| og ég á ekki einu sinni uppþvottagrind:!: Vídeóið er nýtt, keyptum í desember, fengum nýtt vegna bilunar í enda janúar og nú er þetta tæki bilað eins og það sem við skiptum:evil: Verð samt að horfa á björtu hliðarnar og trúa því að allt sé þegar þrennt er:$

Ég og Guðjón fórum á stórgóða sýningu hjá leikfélagi MK í Tjarnarbíói. Þau voru að sýna ROCKY HORROR:haha: og tókst frábærlega hjá þeim. Reyndar var eitt lag sem þau eyðilögðu:frown: algjörlega en það náði ekki að skemma restina af sýningunni. Transinn var tær snilld, Rocky greyið hafði runnið saman við íþróttaálfinn:haha:  systkynin Rif Raf og Magnetta notuðu hvert tækifæri til að r.....8| og Brad og Janet svvvooooo saklaus, allavegana til að byrja með. Held að þetta hafi verið síðast sýning en ef svo er ekki þá mæli ég hiklaust með henni.

Hafið það annars gott um páskana og munið að bursta eftir páskaeggið:haha:

Meira seinna............

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 16:26:56 / magga

Útreikningar

Ég spilaði mína 25.8| vortónleika með Svaninum á þriðjudaginn. Ég fékk 25 ára heiðursmedalíu Svansins afhenta þá og það var nú mikið gaman. Það er samt eitt sem ég skil ekki alveg:$ Hvernig getur staðið á því að ég sem er örugglega ekki nema svona rétt rúmlega 25 ára get hafa verið svona lengi í Svaninum? Það hefur greinilega eitthvað klikkað einhvernstaðar í útreikningum lífsins8| Þarf að kanna þetta nánar...

Meira seinna.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 13:35:55 / magga

Sousa Palooza

Í þessum veikindum öllum hef ég flakkað svolítið á netinu í leit að leikjum til að stytta okkur stundir og fann einn sem er svo ótrúlegur að ég verð að segja ykkur frá honum. Undir þrumandi Sousa-mörsum skýtur maður áttundapörtum úr túbu á fljúgandi óvinahljóðfæri..:haha: Hvejum dettur svona della í hug?:!: Ég hló svo mikið að ég gat varla spilað hahaha, varð reyndar að fá tilsögn frá Kristni Ara því ég kunni ekki að skjóta:$ Veit núna að maður notar bilstöngina í það:lol: Hér er slóðin ef einhver vill prófa...  http://www.armorgames.com/games/sousapalooza.html   Skora á ykkur:!:


Meira seinna....

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 22:47:47 / magga

Djönk

Ég er komin aftur!!

Við Kristinn Ari erum búin að hanga saman lasin síðan á mánudaginn. Erum eiginlega að verða vitlaus hvort á öðru höldum þetta út:D Erum búin að horfa á ótrúlegt magn af teiknimyndum undanfarna daga og sumar aðeins of oft8| Horfðum á Robots í dag og þar var setning sem bjargaði deginum:!: "þetta er svona sambland af jazz og fönk, kallað djönk":haha: Vona að við hressumst fljótlega......
Fór annars á árshátíð Svansins um síðustu helgi. Það mættu allir í grímubúningum þó sumir líktust ótrúlega mikið sjálfum sér. Það mættu frekar fáir en það bjargaði kvöldinu að nokkrir hressir eldri félagar mættu. Það var mikið stuð og endað í partýi hjá Freysa og eftir það fór ég í lengstu leigubílaferð sem ég hef farið, Rauðagerði, eitthvað upp í Árbæ, þaðan í Hafnarfjörð og svo loks út á Álftanes....kom seint/snemma heim, eftir því hvernig á það er litið:haha:

Meira seinna......lofa að það verður ekki eins langt á milli næst:!:



» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 18:13:53 / magga

Að komast í gang

Ég er loksins að komast í eðlilegt horf eftir að lífið tók dýfu stuttu fyrir jól. Það getur verið erfitt að komast í gang aftur og sætta sig við það sem orðið er þegar lífið hagar sér ekki eins og maður ætlast til af því. Elskulegur eiginmaður minn hefur verið mitt ankeri í tilverunni undanfarið, huggað mig eða haldið sig fjarri allt eftir því sem við átti. Aumingja hann að þola skap- og geðsveiflurnar undanfarið, hann er frábær. Ég ákvað að ég yrði að fara eitthvað út og umgangast fólk nú um helgina og við skelltum okkur á Friday's ásamt fleirum og fórum svo á Players á eftir. Þetta var bara gaman en ég hef ekki fengið mér í glas síðan á októberfest Svansins. Ég hrökk vel í gang við þetta og held að ég sé að verða nokkur eðlileg aftur. Þá er bara að bíða eftir því að restin af kerfinu komist í gang og þá held ég að ég verði endanlega komin í lag.

Meira seinna.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 14:27:05 / magga

Gleðileg jól

Gleðileg jól kæru vinir.

Frestaði endurkomu minni í bloggheima þar til eftir áramót af ýmsum ástæðum en lofa því að koma hress til baka;)

Meira seinna...


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2005 17:10:24 / magga

Letiblogg...

Jæja nú er það orðið augljóst að ég er orðinn letibloggari af verstu sort:| Það hefur verið mikið að gera hjá mér undanfarið og hægt að blogga um ýmislegt af því en ég er samt að spá í að taka mér frí frá blogginu í ca. 3 vikur og koma þá tvíefld til baka:haha:

Þangað til þá hafið það gott og verið góð hvort við annað:D

Meira seinna....


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 18:15:10 / magga

Svansfrí

Það er ýmislegt í gangi hjá mér núna.... svo mikið meira að segja að ég hef ákveðið að taka mér frí frá Svaninum fram að áramótum:| Það er ekki samt þar með sagt að þið séuð alveg laus við mig í Svaninum, því ég heimta að fá að vita af öllu sem er að gerast, tónleikum, partýum og öðru skemmtilegu:haha: Það er bara of mikið að gera hjá mér þessa dagana svo ég verð að minnka einhvernstaðar við mig svo ég klikkist ekki:S

Meira seinna......


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 17:34:27 / magga

Veikindi

Nú er Kristinn búinn að vera lasinn frá því á föstudaginn og við erum rétt að verða búin að fá nóg hvort af öðru:haha: Ég hef ekkert farið í vinnuna alla vikuna og hangið heima með honum:S Ég fékk ströng fyrirmæli um það hjá lækninum að hann ætti að vera tvö hitalaus kvöld heima áður en hann mætti fara í skólann og ég er að vona að hann verði hitalaus í kvöld og á morgun svo hann geti farið í skólann á föstudaginn. Það hefur gengið ansi hratt á þolinmæðina hjá mér undanfarna daga og mig er farið að langa til að komast eitthvað út:klikk: Kristinn er líka orðinn pirraður á þessu og getur ekki verið kyrr eitt augnablik, og finnur sér ekkert til að dunda við. Erum búin að spila endalausan Ólsen og veiðimann, horfa á spólur og láta okkur leiðast fullt:S

Honum tókst nú reyndar næstum því að ganga þannig frá sér áðan að hann yrði aldrei veikur aftur8| Við vorum að horfa á spólu upp í hjónarúmmi og ég að brjóta saman þvott í leiðinni. Hann náttúrulega gat engan vegin verið kyrr og lét sig leka niður á gólf en ákvað svo að koma upp í aftur. Hann tók í eina skúffuna á kommóðunni sem sjónvarpið stendur á og togaði sig upp, eða það var alla vegana planið. Í stað þess að standa upp togaði hann kommóðuna með sjónvarpinu ofan á sig8|:!:  Sem betur fer lenti sjónvarpið að mestu leyti á rúmminu en hann var í klessu á milli kommóðunnar og rúmmsins. Ég henti frá mér þvottinum, reif sjónvarpið úr sambandi og henti því lengra upp í, rétti svo kommóðuna við og hundskammaði krakkagreyið sem var í alveg sama sjokki og ég. Það hefði örugglega ekki þurft að fara aftur með hann til læknis ef hann hefði fengið sjónvarpið í hausinn. Sver það, þessi börn.....

Skólahljómsveit Kópavogs B-sveit á að spila í Álftanesskóla á morgun og ég er að hugsa um að fara með Kristinn til að horfa á þó hann fari ekki í skólann. Hita bara bílinn vel áður svo honum verði ekki kalt. Talandi um bílinn, það er nú að kominn tími á að blogga aðeins um þessi bílamál á þessu heimili. Geri það næst...

Meira seinna....


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2005 15:49:01 / magga

Gáfnaljós?

Mig hefur lengi grunað að fólk þurfi ekki að hafa háa greindarvísitölu til að vera fastráðnir í bæjarvinnu Kópavogs:$. Ég vinn reyndar líka hjá Kópavogsbæ en er ekki í bæjarvinnunni:lol: Í Skólahljómsveitinni þurfum við stundum að leita til bæjarstarfsmanna þar sem það er í þeirra verkahring að sjá um viðhald á húsnæðinu okkar og sjá um ýmsar reddingar fyrir okkur. Tveir smiðir sem komu einu sinni til að setja upp einfalda Ikea skápa, byrjuðu á því að henda leiðbeiningunum, skruppu svo í kaffi, komu aftur, klóruðu sér í hausnum, fóru í mat, komu aftur og færðu til efnið og fóru svo heim. Tveim dögum seinna spurðu þeir hvort það væri nokkuð búið að tæma ruslið8| Á endanum tókst þeim að setja saman skápinn með hjálp frá Össa:haha: Þessir tveir heiðurssmiðir hafa viðurnefnin Knoll og Tott í SK. (Teiknimyndasaga frá Austur-Evrópu um ótrúlega klaufa)

Í gærmorgun var ég á ferðinni í Kópavogi og mætti þá götusópara. Svosem fátt merkilegt við það nema að upp úr "tanknum" sem ruslið safnast í stóð strókur af ryki og laufblöðin sem var verið að sópa upp þyrluðust um loftið. Þetta var að sjá eins og gufustrókur úr eimlest nema hvað þessi strókur var ekki hvítur heldur brúnn og skítugur:$ Mér datt einna helst í hug að gleymst hefði að loka einhverju gati þarna uppi á tanknum og hugsaði með mér, sá verður hissa þegar hann ætlar að tæma tankinn, bara ekkert í honum:haha: Það getur nú ekki verið að hann hafi þetta lengi svona, rykið og drullan sem hann er að sópa dreifist bara jafnt aftur fyrir bílinn og ekkert gagn í þessari sópun. En viti menn:!: rétt fyrir kl. 18.00 mætti ég sama sóparanum nú á öðrum stað í bænum. Á þeirri götu höfðu staðið yfir framkvæmdir svo gatan var þakin moldarryki og nú var sko strókurinn upp úr bílnum enn hærri og þykkari8| Sver það, ef ég hefði ekki vitað að ákv. maður er hættur í bæjarvinnu Kópavogs hefði ég haldið að þetta væri hann, en þetta hlýtur að hafa verið eitthvert gáfnaljósið vinur hans:haha:

Meira seinna.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2005 23:11:47 / magga

Skólastjóraþing

Jæja, er ekki kominn tími til að blogga smá? Síðasta helgi var alveg snilld. Reyndar var svo mikil hálka á Hellisheiðinni og ég á sumardekkjum að ég var rétt að drepast úr hræðslu8| Var eiginlega búin að ákveða að færa lögheimilið mitt á Selfoss eða Hveragerði strax eftir helgina, því ég ætlaði sko ekki yfir þessa....:klikk:heiði aftur ótilneydd:!: Tónlistaskólaþingið var fróðlegt og skemmtilegt. Fórum í flotta óvissuferð á föstudagskvöldinu þar sem við ma. fórum á draugasetrið á Stokkseyri. Einn "draugurinn" hafði það eitt að takmarki að hrella mig og elti mig út um allt til að bregða mér. Ég var farin að láta einhvern annan ganga fyrstan fyrir horn en það dugði ekki til. "Draugurinn" bara beið þangað til ég var ekki eins vör um mig og kom þá stökkvandi í andlitið á mér:haha: Ótrúlegt hvað honum tókst oft að bregða mér:evil: Á laugardeginum kom svo Hemmi og við fórum út að borða á Menam, taistað beint á móti hótelinu. Fengum frábæran mat og ég mæli með þessum stað:D Eftir matinn fórum við í bíó ásamt 15 Selfyssingum. Við höfum ekki farið í bíó í áraraðir svo það var ágætis tilbreyting. Eftir matinn fórum við svo bara upp á herbergi og slöppuðum af:D Sem sagt hæfileg blanda af góðum mat, góðum félagsskap og afslöppun, frábær uppskrift að góðri helgi. Sem betur fer var hálkan farin þegar við fórum heim á sunnudeginum, því annars væri ég enn fyrir austan fjall.

Þvottavélin mín brjálaðist í gær:klikk: Hún fer bara ekkert eftir því sem hún á að gera og hættir svo að þvo í miðju kerfi:klikk: Þetta fer ekki vel við haugana af skítugum þvotti sem safnast hafa upp síðustu viku í letikasti húsmóðurinnar. Það átti svo að taka á þessu núna en þá bara klikkast vélin.... Fjölskyldan verður ss skítug næstu daga meðan reynt verður að koma viti fyrir þvottavélina:S

Meira seinna...


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 21:19:04 / magga

Klukk!

Ég var víst klukkuð fyrir síðustu helgi svo ég verð að setja hér inn 5 staðreyndir um sjálfa mig.

1. Ég þoli ekki að vera óstundvís vil helst vera komin vel tímanlega á staðinn.

2. Mér finnast stjórnmálamenn alveg óendanlega leiðinlegir og horfi aldrei á umræðuþætti þar sem þeir koma við sögu.

3. Það leiðinlegasta sem ég geri er að brjóta saman þvott og ganga frá enda eru venjulega heilu fjallgarðarnir af ófrágengnum þvotti í þvottahúsinu.

4.Mig langar ssvvvooooo til útlanda að ég er með verki.

5. Auglýsingar þar sem fólk drekkur eitthvað en kingir ekki, en brosir svo út að eyrum fara í mínar fínustu. Ég meina það ... fólkið er með fullan munninn og er þetta svona vont að það er ekki hægt að kingja eða hvað? Ég bíð alltaf eftir því að það fari að leka út um munnvikin!

Jæja, þá er þetta komið en eftir bloggrúntinn held ég að það sé búið að klukka alla sem ég þekki í blogginu svo ég ætla ekki að klukka neinn.

Var á landsmóti SÍSL um síðustu helgi og það var mikið stress á köflum. Þurfti meira að segja að fara með einn á sjúkrahús með blóðeitrun!! 8| Allt gekk þó vel að lokum og allir komust heilir heim. Fór í 50 ára afmæli Kristjáns bróður á laugardagskvöldinu og svo aftur upp á Skaga snemma á sunnudeginum og kláraði mótið. Spilaði á tónleikum með Blásarasveit Reykjavíkur í Salnum á sunnudagskvöldinu en stakk af í hléi því ég var rétt að leka útaf, vantaði nokkra klukkutíma í svefn eftir þessa helgi.

Í fyrramálið fer ég svo á tónlistarskólastjóraþing (vá langt orð!) á Selfossi. Dagskrá frá kl. 10.00 allan daginn, óvissuferð og árshátíð annað kvöld og meiri fundir á laugardeginum. Hemmi ætlar svo að koma á Selfoss seinni partinn á laugardag og við ætlum að hafa það kósí tvö saman fram á sunnudag. Jarðarber, súkkulaði, freyðivín og kertaljós... hljómar þetta ekki vel??

Meira seinna.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 19:46:52 / magga

Kuldaboli

Djö..:evil: hvað ég þoli ekki þetta veðurfar á þessu skeri núna. Það er allt of kalt og hvasst. Það á ekki að koma svona veður fyrr en í fyrsta lagi í janúar þegar maður er búinn að hafa nokkra mánuði til að venjast kuldanum í rólegheitum og snjór á að vera bannaður þangað til 22. desember8| Ég verð hundleiðinleg í svona veðri...fæ kvef og er alltaf kalt, nenni helst ekki út úr húsi nema það sé 100% nauðsynlegt. Svo er ekki einu sinni miðstöð í bílnum mínum, jú annars það eru 3 stillingar: 1. Kalt 2. Ískalt og  3. Frost:S Ef þetta heldur svona áfram lengi neita ég að fara á fætur á morgnanna og gef nemendum mínum frí vegna veðurs:!: Mig langar til útlanda í smá hita, þarf ekki að vera neitt rosalega heitt, bara svo það frjósi ekki í manni horinn og láta stjana við mig á hóteli:$

Mikil helgi framundan, landsmót SÍSL á Akranesi. Fer á föstudaginn og kem heim á sunnudag, passlega til að spila á tónleikum með Blásarasveitinni í Salnum á sunnudagskvöldið. Hætt við því að maður verði svolítið þreyttur á mánudeginum:lol: Spennandi að sjá hvernig nýtt skipulag á landsmótinu gengur upp. Gef skýrslu um það eftir helgina.

Meira seinna...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5