Magga bloggar
Long time no see....
byrja aftur að blogga. Sumarið hefur annars verið snilld, en best
drukkið, borðað, spilað,dansað, bullað, fíflast.. lítið sofið.
Bjórnum var dælt í okkar í endalausum bunum, svo mikið að manni
varð eiginlega alveg nóg um:!: Fékk á mig viðurnefnið "Magga the
toilet terminator" eftir viðureign mína við dolluna á
hótelherberginu mínu einn morguninn..... ég vann:S Nánari
Það er komið sumar!
Þrenna
vídeótækið bilað:klikk: Bíllinn er meira að segja svo bilaður að
gaurinn sem ætlaði að gera við hann segir ekki taka því og mælir
með endurvinnslunni8| Ég þurfti að bíða í tvo daga eftir
viðgerðarmanni fyrir uppþvottavélina og loks þegar hann kom hagaði
hún sér eins og allt væri í himnalagi en þremur tímum seinna var
hún stopp:klikk: svo Hemmi fór með hana í viðgerð og hún er ekki
væntanleg eftur fyrr en eftir páska8| og ég á ekki einu sinni
uppþvottagrind:!: Vídeóið er nýtt, keyptum í desember, fengum nýtt
vegna bilunar í enda janúar og nú er þetta tæki bilað eins og það
sem við skiptum:evil: Verð samt að horfa á björtu hliðarnar og trúa
Ég og Guðjón fórum á stórgóða sýningu hjá leikfélagi MK í
Tjarnarbíói. Þau voru að sýna ROCKY HORROR:haha: og tókst
frábærlega hjá þeim. Reyndar var eitt lag sem þau eyðilögðu:frown:
algjörlega en það náði ekki að skemma restina af sýningunni.
Transinn var tær snilld, Rocky greyið hafði runnið saman við
hvert tækifæri til að r.....8| og Brad og Janet svvvooooo saklaus,
allavegana til að byrja með. Held að þetta hafi verið síðast sýning
Hafið það annars gott um páskana og munið að bursta eftir
Útreikningar
fékk 25 ára heiðursmedalíu Svansins afhenta þá og það var nú mikið
gaman. Það er samt eitt sem ég skil ekki alveg:$ Hvernig getur
staðið á því að ég sem er örugglega ekki nema svona rétt rúmlega 25
ára get hafa verið svona lengi í Svaninum? Það hefur greinilega
eitthvað klikkað einhvernstaðar í útreikningum lífsins8| Þarf að
Sousa Palooza
leikjum til að stytta okkur stundir og fann einn sem er svo
ótrúlegur að ég verð að segja ykkur frá honum. Undir þrumandi
Sousa-mörsum skýtur maður áttundapörtum úr túbu á fljúgandi
óvinahljóðfæri..:haha: Hvejum dettur svona della í hug?:!: Ég hló
svo mikið að ég gat varla spilað hahaha, varð reyndar að fá tilsögn
frá Kristni Ara því ég kunni ekki að skjóta:$ Veit núna að maður
notar bilstöngina í það:lol: Hér er slóðin ef einhver vill
Djönk
Við Kristinn Ari erum búin að hanga saman lasin síðan á mánudaginn.
Erum eiginlega að verða vitlaus hvort á öðru höldum þetta út:D Erum
búin að horfa á ótrúlegt magn af teiknimyndum undanfarna daga og
sumar aðeins of oft8| Horfðum á Robots í dag og þar var setning sem
bjargaði deginum:!: "þetta er svona sambland af jazz og fönk,
Fór annars á árshátíð Svansins um síðustu helgi. Það mættu allir í
grímubúningum þó sumir líktust ótrúlega mikið sjálfum sér. Það
mættu frekar fáir en það bjargaði kvöldinu að nokkrir hressir eldri
félagar mættu. Það var mikið stuð og endað í partýi hjá Freysa og
eftir það fór ég í lengstu leigubílaferð sem ég hef farið,
Rauðagerði, eitthvað upp í Árbæ, þaðan í Hafnarfjörð og svo loks út
á Álftanes....kom seint/snemma heim, eftir því hvernig á það er
Meira seinna......lofa að það verður ekki eins langt á milli
Að komast í gang
eftir að lífið tók dýfu stuttu fyrir jól. Það getur verið
erfitt að komast í gang aftur og sætta sig við það sem orðið
er þegar lífið hagar sér ekki eins og maður ætlast til af
því. Elskulegur eiginmaður minn hefur verið mitt ankeri í
allt eftir því sem við átti. Aumingja hann að þola skap- og
geðsveiflurnar undanfarið, hann er frábær. Ég ákvað að ég
yrði að fara eitthvað út og umgangast fólk nú um helgina og
við skelltum okkur á Friday's ásamt fleirum og fórum svo á
Players á eftir. Þetta var bara gaman en ég hef ekki fengið
mér í glas síðan á októberfest Svansins. Ég hrökk vel í gang
við þetta og held að ég sé að verða nokkur eðlileg aftur. Þá
er bara að bíða eftir því að restin af kerfinu komist í gang
Gleðileg jól
eftir áramót af ýmsum ástæðum en lofa því að koma hress til
Letiblogg...
orðinn letibloggari af verstu sort:| Það hefur verið mikið að
gera hjá mér undanfarið og hægt að blogga um ýmislegt af því
en ég er samt að spá í að taka mér frí frá blogginu í ca. 3
Svansfrí
svo mikið meira að segja að ég hef ákveðið að taka mér frí
frá Svaninum fram að áramótum:| Það er ekki samt þar með sagt
að þið séuð alveg laus við mig í Svaninum, því ég heimta að
fá að vita af öllu sem er að gerast, tónleikum, partýum og
öðru skemmtilegu:haha: Það er bara of mikið að gera hjá mér
þessa dagana svo ég verð að minnka einhvernstaðar við mig svo
Veikindi
á föstudaginn og við erum rétt að verða búin að fá nóg hvort
af öðru:haha: Ég hef ekkert farið í vinnuna alla vikuna og
hangið heima með honum:S Ég fékk ströng fyrirmæli um það hjá
lækninum að hann ætti að vera tvö hitalaus kvöld heima áður
en hann mætti fara í skólann og ég er að vona að hann verði
hitalaus í kvöld og á morgun svo hann geti farið í skólann á
föstudaginn. Það hefur gengið ansi hratt á þolinmæðina hjá
mér undanfarna daga og mig er farið að langa til að komast
eitthvað út:klikk: Kristinn er líka orðinn pirraður á þessu
og getur ekki verið kyrr eitt augnablik, og finnur sér ekkert
til að dunda við. Erum búin að spila endalausan Ólsen og
veiðimann, horfa á spólur og láta okkur leiðast
frá sér áðan að hann yrði aldrei veikur aftur8| Við vorum að horfa
á spólu upp í hjónarúmmi og ég að brjóta saman þvott í leiðinni.
Hann náttúrulega gat engan vegin verið kyrr og lét sig leka niður á
gólf en ákvað svo að koma upp í aftur. Hann tók í eina skúffuna á
kommóðunni sem sjónvarpið stendur á og togaði sig upp, eða það var
alla vegana planið. Í stað þess að standa upp togaði hann kommóðuna
sjónvarpið að mestu leyti á rúmminu en hann var í klessu á milli
kommóðunnar og rúmmsins. Ég henti frá mér þvottinum, reif
sjónvarpið úr sambandi og henti því lengra upp í, rétti svo
kommóðuna við og hundskammaði krakkagreyið sem var í alveg sama
sjokki og ég. Það hefði örugglega ekki þurft að fara aftur með hann
til læknis ef hann hefði fengið sjónvarpið í hausinn. Sver það,
Álftanesskóla á morgun og ég er að hugsa um að fara með Kristinn
til að horfa á þó hann fari ekki í skólann. Hita bara bílinn vel
áður svo honum verði ekki kalt. Talandi um bílinn, það er nú að
kominn tími á að blogga aðeins um þessi bílamál á þessu heimili.
Gáfnaljós?
að hafa háa greindarvísitölu til að vera fastráðnir í
bæjarvinnu Kópavogs:$. Ég vinn reyndar líka hjá Kópavogsbæ en
er ekki í bæjarvinnunni:lol: Í Skólahljómsveitinni þurfum við
stundum að leita til bæjarstarfsmanna þar sem það er í þeirra
verkahring að sjá um viðhald á húsnæðinu okkar og sjá um
ýmsar reddingar fyrir okkur. Tveir smiðir sem komu einu sinni
til að setja upp einfalda Ikea skápa, byrjuðu á því að henda
leiðbeiningunum, skruppu svo í kaffi, komu aftur, klóruðu sér
í hausnum, fóru í mat, komu aftur og færðu til efnið og fóru
svo heim. Tveim dögum seinna spurðu þeir hvort það væri
nokkuð búið að tæma ruslið8| Á endanum tókst þeim að setja
saman skápinn með hjálp frá Össa:haha: Þessir tveir
heiðurssmiðir hafa viðurnefnin Knoll og Tott í SK.
(Teiknimyndasaga frá Austur-Evrópu um ótrúlega
þá götusópara. Svosem fátt merkilegt við það nema að upp úr
"tanknum" sem ruslið safnast í stóð strókur af ryki og laufblöðin
sem var verið að sópa upp þyrluðust um loftið. Þetta var að sjá
eins og gufustrókur úr eimlest nema hvað þessi strókur var ekki
hvítur heldur brúnn og skítugur:$ Mér datt einna helst í hug að
gleymst hefði að loka einhverju gati þarna uppi á tanknum og
hugsaði með mér, sá verður hissa þegar hann ætlar að tæma tankinn,
bara ekkert í honum:haha: Það getur nú ekki verið að hann hafi
þetta lengi svona, rykið og drullan sem hann er að sópa dreifist
bara jafnt aftur fyrir bílinn og ekkert gagn í þessari sópun. En
viti menn:!: rétt fyrir kl. 18.00 mætti ég sama sóparanum nú á
framkvæmdir svo gatan var þakin moldarryki og nú var sko strókurinn
ekki vitað að ákv. maður er hættur í bæjarvinnu Kópavogs hefði ég
haldið að þetta væri hann, en þetta hlýtur að hafa verið eitthvert
Skólastjóraþing
smá? Síðasta helgi var alveg snilld. Reyndar var svo mikil
hálka á Hellisheiðinni og ég á sumardekkjum að ég var rétt að
drepast úr hræðslu8| Var eiginlega búin að ákveða að færa
lögheimilið mitt á Selfoss eða Hveragerði strax eftir
helgina, því ég ætlaði sko ekki yfir þessa....:klikk:heiði
aftur ótilneydd:!: Tónlistaskólaþingið var fróðlegt og
skemmtilegt. Fórum í flotta óvissuferð á föstudagskvöldinu
þar sem við ma. fórum á draugasetrið á Stokkseyri. Einn
"draugurinn" hafði það eitt að takmarki að hrella mig og elti
mig út um allt til að bregða mér. Ég var farin að láta
einhvern annan ganga fyrstan fyrir horn en það dugði ekki
til. "Draugurinn" bara beið þangað til ég var ekki eins vör
um mig og kom þá stökkvandi í andlitið á mér:haha: Ótrúlegt
hvað honum tókst oft að bregða mér:evil: Á laugardeginum kom
svo Hemmi og við fórum út að borða á Menam, taistað beint á
móti hótelinu. Fengum frábæran mat og ég mæli með þessum
stað:D Eftir matinn fórum við í bíó ásamt 15 Selfyssingum.
Við höfum ekki farið í bíó í áraraðir svo það var ágætis
tilbreyting. Eftir matinn fórum við svo bara upp á herbergi
og slöppuðum af:D Sem sagt hæfileg blanda af góðum mat, góðum
félagsskap og afslöppun, frábær uppskrift að góðri helgi. Sem
betur fer var hálkan farin þegar við fórum heim á
sunnudeginum, því annars væri ég enn fyrir austan
skítugum þvotti sem safnast hafa upp síðustu viku í letikasti
húsmóðurinnar. Það átti svo að taka á þessu núna en þá bara
klikkast vélin.... Fjölskyldan verður ss skítug næstu daga meðan
Klukk!
ég verð að setja hér inn 5 staðreyndir um sjálfa
leiðinlegir og horfi aldrei á umræðuþætti þar sem þeir koma við
saman þvott og ganga frá enda eru venjulega heilu fjallgarðarnir af
kingir ekki, en brosir svo út að eyrum fara í mínar fínustu. Ég
meina það ... fólkið er með fullan munninn og er þetta svona vont
að það er ekki hægt að kingja eða hvað? Ég bíð alltaf eftir því að
held ég að það sé búið að klukka alla sem ég þekki í blogginu svo
mikið stress á köflum. Þurfti meira að segja að fara með einn á
sjúkrahús með blóðeitrun!! 8| Allt gekk þó vel að lokum og allir
komust heilir heim. Fór í 50 ára afmæli Kristjáns bróður á
laugardagskvöldinu og svo aftur upp á Skaga snemma á sunnudeginum
og kláraði mótið. Spilaði á tónleikum með Blásarasveit Reykjavíkur
í Salnum á sunnudagskvöldinu en stakk af í hléi því ég var rétt að
leka útaf, vantaði nokkra klukkutíma í svefn eftir þessa
tónlistarskólastjóraþing (vá langt orð!) á Selfossi. Dagskrá frá
kl. 10.00 allan daginn, óvissuferð og árshátíð annað kvöld og meiri
fundir á laugardeginum. Hemmi ætlar svo að koma á Selfoss seinni
partinn á laugardag og við ætlum að hafa það kósí tvö saman fram á
sunnudag. Jarðarber, súkkulaði, freyðivín og kertaljós... hljómar
Kuldaboli
veðurfar á þessu skeri núna. Það er allt of kalt og hvasst.
Það á ekki að koma svona veður fyrr en í fyrsta lagi í janúar
þegar maður er búinn að hafa nokkra mánuði til að venjast
kuldanum í rólegheitum og snjór á að vera bannaður þangað til
22. desember8| Ég verð hundleiðinleg í svona veðri...fæ kvef
og er alltaf kalt, nenni helst ekki út úr húsi nema það sé
100% nauðsynlegt. Svo er ekki einu sinni miðstöð í bílnum
mínum, jú annars það eru 3 stillingar: 1. Kalt 2. Ískalt
ég að fara á fætur á morgnanna og gef nemendum mínum frí
vegna veðurs:!: Mig langar til útlanda í smá hita, þarf ekki
að vera neitt rosalega heitt, bara svo það frjósi ekki í
Fer á föstudaginn og kem heim á sunnudag, passlega til að spila á
tónleikum með Blásarasveitinni í Salnum á sunnudagskvöldið. Hætt
við því að maður verði svolítið þreyttur á mánudeginum:lol:
Spennandi að sjá hvernig nýtt skipulag á landsmótinu gengur upp.